Ráðstefna um menntun í náttúruvísindum verður haldin á Selfossi dagana 14.-15. apríl.
Við byrjum á föstudeginum í Fjölbrautaskóla Suðurlands og höldum svo áfram í glænýjum Stekkjaskóla á laugardagsmorgninum. Þrír aðalfyrirlesarar munu flytja erindi og svo verða styttri samhliða erindi og vinnustofur.
Jafnframt verður ráðstefnunni streymt til skráðra þátttakenda.
Þátttökugjald er 5000 kr. og greiðist inná reikning Félags raungreinakennara reikningsnr. 0536-04-760711 kt. 620683-0279.
Enn er rými fyrir erindi, vinnustofur eða bása.
Við hlökkum til að sjá ykkur öll og ræða menntun í náttúruvísindum í þaula.