Opið er fyrir skráningu til og með 30. mars. Skráning fer fram með því að smella hér.
Skráningargjaldið er 4.000 kr., í því felast allir viðburðir í dagskrá og kaffiveitingar. Greiðsluseðill verður sendur í netbanka. Skráning er bindandi.
Dagskrá
Efni málþings – Ágrip og lýsingar efnis á málþinginu.
Dagskrá málþings – Yfirlit dagskrár á pdf-formi (uppfært 29.3.2017).
Málþingsbæklingur – Ágrip og lýsingar efnis á málþinginu ásamt yfirliti dagskrár, á pdf-formi. Gott er að hlaða skjalinu niður í símann áður en málþingið hefst 😉
Sameiginlegum viðburður í Bratta verður streymt til þeirra sem eru úti á landi eða eiga ekki heimangengt. Öðrum viðburðum á málþinginu verður ekki streymt. Við vonum að þetta falli í góðan jarðveg en bendum á að það jafnast ekkert á við að mæta á staðinn!
Á föstudeginum getið þið fylgst með hér en á laugardeginum hér, ekki er um sömu slóðir að ræða.
Fyrir hverja er málþingið?
Málþingið er ætlað öllum sem koma að menntun í náttúrufræði- og raunvísindagreinum ásamt örðum áhugasömum. Efni málþingsins er sniðið að öllum skólastigum. Á málþinginu verður efni frá starfandi kennurum á öllum skólastigum, leik-, grunn-, framhalds- og háskóla, skólastjórnendum, fræðafólki, fulltrúum atvinnulífsins og öðrum áhugasömum. Með náttúrufræðimenntun er átt við öll svið innan náttúru- og raunvísinda.
Vinsamlega bentu samstarfsfólki og öllum þeim sem kunna að hafa áhuga á .málþinginu á að skrá sig.
Nánari upplýsingar veitir Ester Ýr Jónsdóttir, esteryj@hi.is, hjá Menntavísindasviði Háskóla Íslands.
#natt2017
Að þinginu standa
Rannsóknarstofa um náttúrufræðimenntun við Menntavísindasvið Háskóla Íslands í samstarfi við: