Opið er fyrir skráningu á Málþing um náttúrufræðimenntun sem fer fram dagana 31. mars og 1. apríl 2017 í húsnæði Menntavísindasviðs Háskóla Íslands við Stakkahlíð á vegum Rannsóknarstofu um náttúrufræðimenntun (RAUN) við Menntavísindasvið Háskóla Íslands í samstarfi við ýmsa aðila. Skráning fer fram með því að smella hér.
Opið er fyrir skráningu til og með 30. mars.
Skráningargjaldið er 4.000 kr. Kaffiveitingar innifaldar. Greiðsluseðill verður sendur í netbanka. Skráning er bindandi.
Dagskrá
Dagskrá má nálgast hér (uppfært 19.3.2017)
Málþingsbæklingur með dagskrá og lýsingum á erindum er í vinnslu og verður birtur hér innan tíðar.
Fyrir hverja er málþingið?
Málþingið er ætlað öllum sem koma að menntun í náttúrufræði- og raunvísindagreinum ásamt örðum áhugasömum. Efni málþingsins er sniðið að öllum skólastigum. Á málþinginu verður efni frá starfandi kennurum á öllum skólastigum, leik-, grunn-, framhalds- og háskóla, skólastjórnendum, fræðafólki, fulltrúum atvinnulífsins og öðrum áhugasömum. Með náttúrufræðimenntun er átt við öll svið innan náttúru- og raunvísinda.
Vinsamlega bentu samstarfsfólki og öllum þeim sem kunna að hafa áhuga á .málþinginu á að skrá sig.
Nánari upplýsingar veitir Ester Ýr Jónsdóttir, esteryj@hi.is, hjá Menntavísindasviði Háskóla Íslands.
#natt2017
Að þinginu standa
Rannsóknarstofa um náttúrufræðimenntun við Menntavísindasvið Háskóla Íslands í samstarfi við: