Þessi síða er afrit af síðu ráðstefnunnar 2019 af vef Miðstöðvar skólaþrónuar við Háskólann á Akureyri https://www.msha.is/is/moya/page/vorradstefna-2019
VÍSINDI Í NÁMI OG LEIK
Vorráðstefnan – Vísindi í námi og leik
Laugardaginn 30. mars 2019 verður efnt til ráðstefnunnar Vísindi í námi og leik í samstarfi Miðstöðvar skólaþróunar við Háskólann á Akureyri og Málþings um náttúrufræðimenntun*. Á ráðstefnunni verður fjallað um nám og kennslu í náttúruvísindum, stærðfræði og tækni, þ.m.t. upplýsingatækni, í leik-, grunn- og framhaldsskólum.
Ráðstefnan er ætluð kennurum og starfsfólki í leik-, grunn-, og framhaldsskólum og sérstaklega er horft til þess að umfjöllunarefni hafi hagnýtt gildi í skólastarfi. Auk aðalfyrirlestra og pallborðsumræðna verða málstofuerindi, vinnustofur og veggspjöld þar sem reifuð verða ýmis mál er lúta að námi og kennslu með sérstakri áherslu á fyrrnefnd viðfangsefni.
Upplýsingar um ráðstefnuna má einnig finna á Facebook-síðum MSHA og Náttúrutorgs og á Náttúrutorgi – natturutorg.is
Skráning á ráðstefnu
Frestur til að skrá sig er til 27. mars.
Ekki er hægt að fá endurgreitt eftir að skráningu lýkur.
Menntabúðir í Hrafnagilsskóla
Í tengslum við ráðstefnuna verður boðið upp á menntabúðir í Hrafnagilsskóla Í Eyjafjarðarsveit föstudaginn 29. mars frá klukkan 15:00-16:45. Yfirskrift menntabúðanna er: Vísindi í námi og leik. Í menntabúðunum verður lögð áhersla á skapandi kennsluhætti á öllum aldursstigum frá leikskóla til grunnskóla. Ókeypis er á viðburðinn og við hvetjum alla til að mæta.
Skráning á menntabúðir
Dagskrá ráðstefnunnar
9.30-10:00 | Skráning og afhending gagna |
10.00-10:15 | Setning – Eyjólfur Guðmundsson, rektor Háskólans á Akureyri |
10.20-11:00 | Boosting mathematics teaching and learning: Development and research projects with teachers – Dr. Lisa Björklund |
11:05-12:05 | Vinnustofulota I |
11:05-11:35 | Málstofulota I |
11.40-12:10 | Málstofulota II |
12:10-12:50 | Matarhlé – veitingar í Miðborg fyrir ráðstefnugesti |
12:50-13:30 | Nám og kennsla í táknfræðilegu ljósi – Dr. Hafþór Guðjónsson |
13:35-14:35 | Vinnustofulota II |
13:35-14:05 | Málstofulota III |
14:10-14:40 | Málstofulota IV |
14:40-14:55 | Kaffi – veitingar í Miðborg fyrir ráðstefnugesti |
14:55-15:35 | Pallborð – Dr. Svava Pétursdóttir, lektor við HÍ, stýrir umræðum |
15:40-16:00 | Ráðstefnuslit – Laufey Petrea Magnúsdóttir forstöðumaður MSHA |
15:45-:16:00 | Undur efnafræðinnar – sýning – Sean Michael Scully |
Mál- og vinnustofuyfirlit
Snjallvagn MSHA verður á svæðinu
Gagnlegar upplýsingar
Tilboð á gistingu til ráðstefnugesta
Afþreying á Akureyri
Við vekjum athygli ráðstefnugesta á því að flestir eiga rétt á að sækja um endurgreiðslu á ráðstefnugjöldum og ferðakostnaði til stéttarfélaganna:
Félag leikskólakennara
Félag grunnskólakennara
Félag framhaldskólakennara
BHM háskólakennarar
*Að baki Málþings um náttúrufræðimenntun standa ýmis félög og samtök, má þar nefna: Samlíf – samtök líffræðikennara, Félag raungreinakennara, NaNO – Náttúruvísindi á nýrri öld, GERT, RAUN – Rannsóknar-stofu um náttúrufræðimenntun, Flöt – samtök stærðfræðikennara og Félag leikskólakennara. Að auki koma Menntavísindasvið HÍ og Kennaradeild HA að ráðstefnunni.